Heim / Um Ekta fisk / Hauganes í Eyjafirði

Höfuðstöðvar og framleiðslustaður Ekta fisks og Ekta rétta er á Hauganesi í Eyjafirði.

Hauganes er lítið þorp í vestanverðum Eyjafirði, 22 km norðan við Akureyri og 12km sunnan við Dalvík. Þar búa um 140 manns. Hauganes tilheyrir Árskógsströnd og er hluti af sveitarfélaginu Dalvíkurbyggð. Aðra starfsemi á Hauganesi má nefna hvalaskoðunarfyrirtækið Níels Jónsson, smábátaútgerðina Kussung og hestaræktandinn Hauganes hestar. Frá Hauganesi sér yfir á Ytri-Vík, ferðaþjónustu til suðurs, yfir til Grenivíkur til austurs og út í mynni Eyjafjarðar til norðurs.

Við þjóðveginn fyrir ofan Hauganes er Stærra-Árskógskirkja, Árskógarskóli og Leikskólinn í Árskógi, ásamt íþróttasvæði UMFR.

image
Smelltu á myndina til að sjá hana stærri