Heim / Ekta réttir / Saga
Þegar ég var 12 ára gamall, uppúr 1965, að byrja að vinna í saltfiski með foreldrum mínum og systkinum fór ég strax að spá í hvað það var mikil synd að flytja allan saltfiskinn, þetta fína hráefni, úr landi í 50 kg strigapokum sem var hent upp á bíla og lítil virðing borin fyrir að mér fannst.
Strax þá 12 ára eignaðist ég þann draum að fullvinna fisk og þá sérstaklega saltfisk í tilbúna rétti sem þyrfti bara að hita upp heima.
Núna 40 árum og mikilli vinnu seinna er þessi draumur orðinn að veruleika.
Þetta sýnir okkur mikilvægi þess að halda í draumana og gefast ekki upp, það kemur að því að þeir rætast.
Elvar Reykjalín,
framkvæmdastjóri
