Heim / Ekta fiskur
Hjá Ekta fiski getur þú verið fullviss um að fá ávallt fyrsta flokks fiskmeti af fjölbreyttum toga.
Allar afurðir eru fullunnar og tilbúnar í pottinn, pönnuna eða á grillið.
Við viljum vekja sérstaka athygli á sérútvatnaða saltfisknum en hann er roðflettur og útvatnaður lengur en venjulegi saltfiskurinn, þannig að hann er tilvalinn í ýmsa rétti sem annars eru kryddaðir.
Á uppskriftasíðunni okkar má finna ýmsar góðar uppskriftir sem við hvetjum þig til að prófa og endilega segja okkur hvernig þér líkar.
Viltu panta? hafðu samband við sölustjórann okkar, gulla@ektafiskur.is, hringdu í síma 466 1016, eða fylltu út formið á síðunni okkar.
